Brasilískt vax á meðgöngu

09. febrúar 2026

Sæl, má fara í brasilískt vax á meðgöngu?

Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,

Það er almennt talið í lagi að fara í brasilískt vax á meðgöngu, sé meðgangan án áhættuþátta. Gott er að hafa í huga að húðin gæti verið viðkvæmari vegna aukins blóðflæðis og bjúgs og því getur vaxið orðið sársaukafyllra en fyrir meðgöngu.

Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.