Breyttur litur útferðar á meðgöngu

08. febrúar 2026

Hæ hæ, er komin 12 + 2 og var að velta fyrir mér hvort ljós gul útferð væri eðlileg? Er búin að vera með kvef síðan ég varð ólétt og hef verið að fá ljós gula útferð af og til, en oftast er útferðin hvít. Er þetta eitthvað sem ég þarf að hafa áhyggjur af?

Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,

Algengt er að útferð breytist á meðgöngu og aukist. Ef þú hefur áhyggjur af breyttri áferð, lit, lykt eða magni útferðar ráðlegg ég þér að hafa samband við ljósmóður í meðgönguvernd. Í einhverjum tilvikum er tekið strok til kanna hvort um aukinn vöxt baktería sé að ræða eða sveppasýkingu.

Gangi þér vel.

Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.