Carpal Tunnel - meðferð

23. mars 2026

Hæhæ,
Ég er með undirliggjandi Carpal Tunnel sem hefur ágerst gífurlegar núna síðustu 2 vikur og ég er komin 37 + 4 . Ég sef ekki nema 2klst í senn og er með rosalegan taugaverk og náladofa í báðum höndum og er alveg að bilast á að ná ekki að hvíla mig.

Er í lagi fyrir mig að fá Cortistol sprauti í úlnliðina til að hjálpa mér?

Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,

Hér eru upplýsingar um meðferð við Carpal Tunnel á meðgöngu.

Ef þú hefur áður fengið kortison sprautu gætir þú haft samband við gigtarlækni til að meta ávinning og áhættur af meðferðinni.

Gangi þér vel.

Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.