Einkenni í upphafi meðgöngu

24. janúar 2025

Konan mín er núna um 5-6 vikna ólétt.
Hún hefur einkenni eins og verki neðst í kvið, stundum efri hluta kviða, stundum hægra megin og stundum vinstra megin ( skarpur sársauki ) ásamt þyngsli fyrir brjósti og hröðum hjartslætti.
Þessi einkenni koma venjulega fram á kvöldin og á nóttunni áður en farið er að sofa.
Hefur þetta einhver áhrif á móður og fóstur ? þurfum við að fara til læknis ?

Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,

Í upphafi meðgöngu finna margar konur fyrir uppþembu, fá milda krampa og verki í mjóbaki líkt og rétt fyrir tíðablæðingar. Líkamlegar breytingar af völdum þungunar geta valdið því að púls hækki og minna þurfi til þess að kona upplifi mæði. Ef vanlíðan er til staðar er gott að hafa samband við heilsugæsluna og óska eftir símtali við ljósmóður sem metur þörf á frekari skoðun.

Gangi ykkur vel.

Kær kveðja, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.