Kaldi potturinn á meðgöngu

19. mars 2025

Er í lagi að fara í kalda pottinn í sundi?
Ég fer oftast í 30 sekúndur, en er ekki viss hvort það er í lagi á meðgöngu.

Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,

Það að fara í kaldan pott á meðgöngu er talið öruggt fyrir heilbrigðan einstakling sem vanur er köldum pottum. Þá er ráðlagt að vera aðeins stutta stund í senn, eftir því hvað einstaklingur er vanur. Þó er mikilvægt að vera skynsamur og hlusta vel á líkama og líðan í hvert sinn.

Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljómsóðir.