Gerjuð matvæli
05. febrúar 2026
Góðan dag,
Mig langar að spurja ykkur út í gerjuð matvæli á meðgöngu. Eins og t.d. súrkál (gerilsneyttt eða ógerilsneytt), ósíað eplaedik og kombucha (gerjað te).
Er í lagi að borða þessi matvæli á meðgöngu?
Takk og kær kveðja.
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Almennt er talið í lagi að neyta gerjaðra matvæla á meðgöngu svo lengi sem gerjun fer rétt fram og matvæli eru geymd við réttar aðstæður.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.
