Kalk á meðgöngu
15. janúar 2026
Ég er með eina spurningu úti kalk á meðgöngu . Ég drekk ekki mjólk og borða ekki mikið af mjólkurvörum nema ost.
Á minni fyrstu meðgöngu skemmdust tennurnar mínar hrikalega mikið (margar skemmdir) væri alveg til í að sleppa við það á þessari meðgöngu 😊
Hvaða kalk töflum mælið með til að taka inn , frá hvaða merki og hvað má ég taka inn mikið ?
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Hér getur þú nálgast upplýsingar um kalk á meðgöngu, allt frá ráðlögðum dagskammti yfir í hvaða matvörum kalk er að finna.
Varðandi tannskemmdir á meðgöngu gæti bakflæði á meðgöngu einnig aukið líkur því. Ef þú verður vör við einkenni bakflæðis ráðlegg ég þér að ræða við ljósmóður í mæðravernd varðandi úrræði.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
