Krampar á meðgöngu
12. febrúar 2026
Ég fæ svakalega krampa í kálfa og iljar á nóttunni, þannig að ég haltra daginn/dagana á efrir. Er eitthvað hægt að gera til að minnka nætur krampa? Hiti/kuldi, nudd og teygjur hafa ekki dugað.
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Sinadrættir/krampar á meðgögnu er algengur fylgikvilli meðgöngunnar. Í einhverjum tilvikum getur aukin inntaka magnesíum hjálpað til. Einnig getur hjálpað að fara í heitt bað, léttan göngutúr og teygja vel eftir á. Einnig hvet ég þig að drekka vel af vatni þar sem þurrkur getur aukið krampa.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
