Meðferð vegna varta - með barn á brjósti
24. mars 2025
Góðan dag,
Hvað er í lagi að nota á vörtu (undir fæti) þegar maður er með barn á brjósti? Eru einhverjir vörtuplástrar eða frystipennar í lagi? Hef líka heyrt talað um fótagaldur frá Villimey, má nota hann?
Góðan dag og takk fyrirspurnina,
Vörtuplástrar eiga flestir að vera í lagi að nota á meðgöngu svo lengi sem vörtur eru ekki á bringusvæði/nálægt brjóstum. Þó væri ráðlagt að bera það undir lyfjafræðing í Apóteki þegar plástrarnir eru keyptir.
Á heilsugæslunni eru vörtur oft frystar og það ekki talið skaðlegt samhliða brjóstagjöf. Á heilsugæslunni getur þú fengið ráðgjöf um viðeigandi meðferð frá hjúkrunarfræðingi eða lækni.
Það er í lagi að nota fótagaldur samhliða brjóstagjöf.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir