Neikvætt óléttupróf en ekki bólar á blæðingum
Ég er venjulega með 26-28 daga tiðarhring.
Ég hef verið með aumar geirvörtur og af og til komið verkir í brjóstin. Er mjög þreytt, smá stingir neðst I kvið og niður í nára. Hef líka verið frekar tilfinningarík. Ég borða líka endalaust, er gjörsamlega botnlaus og er orðin svöng mjög fljótlega eftir mat. Ég pissa líka óvenju oft og mikið þó ég drekki ekki meira en venjulega. Ég er komin á dag 32 i tiðarhring.
Hins vegar hafa öll próf komið neikvætt. Fyrsta prófið tok eg á degi 26, þá reyndar rétt fyrir miðnætti ca 10 mín eftir að hafa pissað áður.
Seinna prófið tok eg a degi 31, þá um kl 3:30 að nóttu til, eftir ca 3 klst svefn og því um 2-3 tímar frá síðustu þvaglátum. Þvag skærgult og tært.
Bæði prófin voru neikvæð en ekkert bólar á blæðingum. Er enn möguleiki á jakvæðu prófi eða á ég að hafa áhyggjur?
Góðan daginn og takk fyrir fyrirspurnina,
Það geta verið ýmsar ástæður fyrir seinkuðum blæðingum. Ef um þungun er að ræða þá gæti verið að jákvætt próf komi á næstu dögum. Því myndi ég ráðleggja þér að taka annað próf eftir nokkra daga og nota fyrsta þvag dagsins. Ef ekkert bólar á blæðingum og óléttupróf enn neikvæð eftir 1-2 vikur gætir þú fengið tíma hjá kvensjúkdómalækni til að fá frekari skoðun.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
