Heitir salir
07. mars 2026
Sæl veriði ég hef mikið verið að mæta í heita tíma og pilates í heitum sal og var að komast að því að ég væri komin 6 vikur á leið er alveg öruggt að halda áfram að mæta í þessa tíma?
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Almennt er ekki ráðlagt að æfa í heitum sölum á meðgöngu. Sumir sem eru vanir að æfa í heitum sölum halda því áfram en þá er ráðlagt að huga vel að góðri vökvainntöku fyrir, í og eftir tímann. Einnig er mikilvægt að fara úr tímanum ef þú finnur fyrir vanlíðan og vera ekki of lengi í hitanum.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.
