Skipta um ljósmóður
09. ágúst 2026
Ég er komin 9 vikur og hef farið í einn tíma hjá ljósmóður hjá heilsugæslunni. Ég fór að velta fyrir mér hvort að það er möguleiki að skipta um ljósmóður? Eða er kannski bara ein að vinna á hverri heilsugæslustöð? Vildi ekki spurja á Heilsugæslunni því ég ímynda mér að fólk þar vinni náið saman/þekkist vel.
Sæl,
Það er auðvitað hægt að skipta um ljósmóður. Það er mismunandi hversu margar ljósmæður vinna á hverri heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu en yfirleitt eru þær fleiri en ein.
Ritarar stöðvarinnar ættu að geta aðstoðað þig við að fá tíma hjá annarri ljósmóður eða ráðleggja þér að leita á næstu heilsugæslustöð. Það er mjög mikilvægt að fara til aðila sem manni líður vel hjá og mismunandi hentar hverjum og einum. Gangi þér vel.
