Sólarvörn á meðgöngu

04. apríl 2025

Mig langaði að fá álit ykkar á sólarvörnum fyrir þungaðar konur ?
Kemísk vs. Steinefna sólarvörn ?

Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,

Við getum ekki mælt með annarri gerðinni fram yfir hina fyrir konur á meðgöngu. Þó er auðvitað kostur að steinefna sólarvörn situr á húðinni samanborið við kemíska sem fer í húðina. Við mælum í grunninn með að velja sólarvarnir sem gerðar eru fyrir viðkvæma húð og án aukaefna.

Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir.