Sund eftir að slímtappi fer.

05. nóvember 0202

Má almennt fara í sund eftir að slímtappi er farinn? Er með um 3 cm útvíkkun en engin merki um legvatn né reglulegar hríðar.

Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,

Það er í góðu lagi að fara í sund svo lengi sem ekki er grunur um legvatnsleka. Slímtappinn getur endurnýja sig. Þegar losnar um slímtappa getur hann losnað að hluta eða allur.

Gangi þér vel.

Bestu kveðjur, Ilmur Björg ljósmóðir.