Vatnsdrykkja á meðgöngu

29. janúar 2026

Ég á svakalega erfitt með að drekka vatn á meðgöngu, get það bara ekki án þess að kasta upp, og hef verið að setja aloe vera djús (Herbalife) út í vatn til að hafa smá bragð svo ég geti drukkið vatnið. Ég var eitthvað að googla áðan og fann rosalega misvísandi svör með hvort það sé öruggt og þá sérstaklega á fyrsta þriðjungi svo mig langaði að senda fyrirspurn hingað til að fá skýrari svör.
Er annars einhverjar aðrar góðar leiðir til þess að koma í sig vökva þegar vatn er alveg síðasta sort? Tek það fram að almennt er ég mjög dugleg að drekka vatn en það breytist eitthvað á meðgöngu og ég bara get það ekki.

Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,

Stundum hjálpar að setja klaka í vatnið eða einmitt bragð/þykkni í vatnið. Það eru efni í aloe vera plöntum sem eru ekki ráðlögð inntöku á meðgöngu og því myndi ég ráðleggja þér að velja annað. Gangi þér vel.

Bestu kveðjur, ljósmóðir.