Veikindi á meðgöngu

25. mars 2025

Er á 4. degi með kvef og hálsbólgu. Þarf ég að láta ljósmóður vita eða bara nefna það í næstu skoðun?

Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,

Sé um venjulega kvefpest að ræða og það gengur vel að nærast og drekka er almennt ekki þörf á að láta ljósmóður vita. Kvef gengur yfirleitt yfir að sjálfu sér á um það bil 10 dögum. Ef þú hefur áhyggjur af einkennum eða búin að vera veik í lengur en 10 daga gæti verið sniðugt að fara á heilsugæsluna fyrir nánara mat.

Hér er hægt að lesa um kvef, bæði einkenni þess og hvað hægt sé að gera.

Gangi þér vel.

Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.