Veikindi í kringum fæðingu barns

05. nóvember 2026

Sæl, ég er gengin rétt tæplega 40 vikur og 7 ára sonur minn er búinn að vera veikur og er með slæman hósta, hverskonar ráðstafanir ætti ég að gera ef ég fæði á næstu dögum?

kær kveðja

Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,

Í raun er ekkert sérstakt sem þarf að gerast fyrir fæðingu. En alltaf gott að huga að hreinlæti líkt og handþvotti þegar veikindi eru á heimili. Vonandi klárast pestin fyrir fæðingu.
Ef ekki væri gott að huga vel að handþvotti hjá öllum meðlimum fjölskyldunnar eftir að barnið kemur inn á heimilið. Eins að passa uppá smitvarnir líkt og kenna þeim 7 ára að hnerra/hósta ekki í átt að nýburanum, geyma kossa og þess háttar. Endilega spurðu ljósmóður ráða sem sinnir ykkur heima eftir fæðingu ef það eru enn veikindi á heimilinu eftir fæðingu.

Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.