Verkjalyf með barn á brjósti.
Ég er með 10 mánaða barn á brjósti sem býst við að verði það áfram í 1-2 ár í viðbót.
Læknir var að mæla með að ég færi í stoðkerfisaðgerð en eftir hana þarf ég að taka parkodin í viku sem skv. lyfseðli má ekki taka með barn á brjósti. Er eitthvað annað sambærilegt verkjalyf sem má taka með brjóstagjöf? Eða þarf ég bara að fresta aðgerð þar til barnið er hætt á brjósti? Að pumpa á undan og gefa barni á meðan og svo pumpa á meðan er á verkjalyfjum til að viðhalda framleiðslu væri ekki góð lausn því barnið sýgur brjóstið til að róa sig og svæfa svo sogið sjálft á brjóstinu er ekki síður mikilvægt fyrir barnið en mjólkin sjálf.
Fyrirfram þakkir!
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Það er ekki ráðlagt að taka inn Parkodin á meðgöngu til lengri tíma. Það er spurning hvort Paracetamol myndi nægja (í lagi að taka með brjóstagjöf), en það fer eftir aðgerð og hvernig líðan er eftir aðgerð. Ég myndi ráðleggja þér að meta verkjastillingu með þeim lækni sem framkvæmir aðgerðina með tilliti til þess að verkjalyfin fari með bjróstagjöfinni. Gangi þér sem allra best.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.
