Sæl, ég er gengin rétt tæplega 40 vikur og 7 ára sonur minn er búinn að vera veikur og er með slæman hósta, hverskonar ráðstafanir ætti ég að gera ef ég fæði á næstu dögum?
kær kveðjaGóðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Í raun er ekkert sérstakt sem þarf að gerast fyrir fæðingu. En alltaf gott að huga að hreinlæti líkt og handþvotti þegar veikindi eru á heimili. Vonandi klárast pestin fyrir fæðingu.
Ef ekki væri gott að huga vel að handþvotti hjá öllum meðlimum fjölskyldunnar eftir að barnið kemur inn á heimilið. Eins að passa uppá smitvarnir líkt og kenna þeim 7 ára að hnerra/hósta ekki í átt að nýburanum, geyma kossa og þess háttar. Endilega spurðu ljósmóður ráða sem sinnir ykkur heima eftir fæðingu ef það eru enn veikindi á heimilinu eftir fæðingu.Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.
Ég er komin 9 vikur og hef farið í einn tíma hjá ljósmóður hjá heilsugæslunni. Ég fór að velta fyrir mér hvort að það er möguleiki að skipta um ljósmóður? Eða er kannski bara ein að vinna á hverri heilsugæslustöð? Vildi ekki spurja á Heilsugæslunni því ég ímynda mér að fólk þar vinni náið saman/þekkist vel.
Sæl,
Það er auðvitað hægt að skipta um ljósmóður. Það er mismunandi hversu margar ljósmæður vinna á hverri heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu en yfirleitt eru þær fleiri en ein.
Ritarar stöðvarinnar ættu að geta aðstoðað þig við að fá tíma hjá annarri ljósmóður eða ráðleggja þér að leita á næstu heilsugæslustöð. Það er mjög mikilvægt að fara til aðila sem manni líður vel hjá og mismunandi hentar hverjum og einum. Gangi þér vel.
Ég er með 10 mánaða barn á brjósti sem býst við að verði það áfram í 1-2 ár í viðbót.
Læknir var að mæla með að ég færi í stoðkerfisaðgerð en eftir hana þarf ég að taka parkodin í viku sem skv. lyfseðli má ekki taka með barn á brjósti. Er eitthvað annað sambærilegt verkjalyf sem má taka með brjóstagjöf? Eða þarf ég bara að fresta aðgerð þar til barnið er hætt á brjósti? Að pumpa á undan og gefa barni á meðan og svo pumpa á meðan er á verkjalyfjum til að viðhalda framleiðslu væri ekki góð lausn því barnið sýgur brjóstið til að róa sig og svæfa svo sogið sjálft á brjóstinu er ekki síður mikilvægt fyrir barnið en mjólkin sjálf.
Fyrirfram þakkir!Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Það er ekki ráðlagt að taka inn Parkodin á meðgöngu til lengri tíma. Það er spurning hvort Paracetamol myndi nægja (í lagi að taka með brjóstagjöf), en það fer eftir aðgerð og hvernig líðan er eftir aðgerð. Ég myndi ráðleggja þér að meta verkjastillingu með þeim lækni sem framkvæmir aðgerðina með tilliti til þess að verkjalyfin fari með bjróstagjöfinni. Gangi þér sem allra best.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.

Alþjóðasiðareglur ljósmæðra
Siðareglur ljósmæðra byggja á gagnkvæmu trausti og virðingu og á þeirri meginhugsun að sérhvern einstakling beri að virða sem manneskju.
Fæðingartölur á Íslandi
- 0
Að meðaltali fæðir kona/leghafi 1,6 barn á ævi sinni. Sú tíðni hefur jafnt og þétt farið lækkandi síðastliðna áratugi.
- 0
Árið 2023 fæddust samtals 2257 drengir, sem var tæplega helmingur allra fæddra barna.
- 0
Á sama tíma fæddust 2058 stúlkur, sem gerði heildarfjölda nýfæddra barna að 4315.













