Ég er með 10 mánaða barn á brjósti sem býst við að verði það áfram í 1-2 ár í viðbót.
Læknir var að mæla með að ég færi í stoðkerfisaðgerð en eftir hana þarf ég að taka parkodin í viku sem skv. lyfseðli má ekki taka með barn á brjósti. Er eitthvað annað sambærilegt verkjalyf sem má taka með brjóstagjöf? Eða þarf ég bara að fresta aðgerð þar til barnið er hætt á brjósti? Að pumpa á undan og gefa barni á meðan og svo pumpa á meðan er á verkjalyfjum til að viðhalda framleiðslu væri ekki góð lausn því barnið sýgur brjóstið til að róa sig og svæfa svo sogið sjálft á brjóstinu er ekki síður mikilvægt fyrir barnið en mjólkin sjálf.
Fyrirfram þakkir!Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Það er ekki ráðlagt að taka inn Parkodin á meðgöngu til lengri tíma. Það er spurning hvort Paracetamol myndi nægja (í lagi að taka með brjóstagjöf), en það fer eftir aðgerð og hvernig líðan er eftir aðgerð. Ég myndi ráðleggja þér að meta verkjastillingu með þeim lækni sem framkvæmir aðgerðina með tilliti til þess að verkjalyfin fari með bjróstagjöfinni. Gangi þér sem allra best.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.
Góðan daginn,
Ég er bara komin 9 vikur og 2 daga og hef átt hrikalega erfitt með svefn. Það er ég næ ekki góðum svefni. Næ að sofna en gæði svefnsins er ekki góður sem er farið að hafa áhrif á bara heilsu almennt. þetta er ekki vandamál sem ég hef átt við annars. Er bara að velta fyrir mér hvort eitthvað væri til sem væri öruggt að taka til þess að ná betri svefni eins og melatonin?
Kær kveðjaGóðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Hér er upplýsingar um einfalda hluti sem geta bætt svefn og svefnrútínu. Ég hvet þig til að skoða listann og athuga hvort eitthvað á listanum getur ýtt undir betri svefngæði hjá þér. Ef engin ráð virka og svefninn er áfram slæmur væri sniðugt að hafa samband við ljósmóður í meðgönguvernd og meta aðstoð með lyfjameðferð. Gangi þér sem allra best.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.
Hæhæ,
Ég er með undirliggjandi Carpal Tunnel sem hefur ágerst gífurlegar núna síðustu 2 vikur og ég er komin 37 + 4 . Ég sef ekki nema 2klst í senn og er með rosalegan taugaverk og náladofa í báðum höndum og er alveg að bilast á að ná ekki að hvíla mig.
Er í lagi fyrir mig að fá Cortistol sprauti í úlnliðina til að hjálpa mér?Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Hér eru upplýsingar um meðferð við Carpal Tunnel á meðgöngu.
Ef þú hefur áður fengið kortison sprautu gætir þú haft samband við gigtarlækni til að meta ávinning og áhættur af meðferðinni.
Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.

Alþjóðasiðareglur ljósmæðra
Siðareglur ljósmæðra byggja á gagnkvæmu trausti og virðingu og á þeirri meginhugsun að sérhvern einstakling beri að virða sem manneskju.
Fæðingartölur á Íslandi
- 0
Að meðaltali fæðir kona/leghafi 1,6 barn á ævi sinni. Sú tíðni hefur jafnt og þétt farið lækkandi síðastliðna áratugi.
- 0
Árið 2023 fæddust samtals 2257 drengir, sem var tæplega helmingur allra fæddra barna.
- 0
Á sama tíma fæddust 2058 stúlkur, sem gerði heildarfjölda nýfæddra barna að 4315.













