Mig langaði að fá álit ykkar á sólarvörnum fyrir þungaðar konur ?
Kemísk vs. Steinefna sólarvörn ?Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Við getum ekki mælt með annarri gerðinni fram yfir hina fyrir konur á meðgöngu. Þó er auðvitað kostur að steinefna sólarvörn situr á húðinni samanborið við kemíska sem fer í húðina. Við mælum í grunninn með að velja sólarvarnir sem gerðar eru fyrir viðkvæma húð og án aukaefna.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir.
Hvernig er það með svona deli mat? Eins og roastbeef td. Má borða það á meðgöngu?
Deli matur getur verið áhættusamur þegar kjöt hefur verið lítið eldað. Hrátt og lítið eldað kjöt er ekki ráðlagt að neyta á meðgöngu vegna mögulegrar hættu á Listeriu smiti.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
Hæhæ, ég er ný búin að fá jákvætt próf og út frá reikningum ætti ég að vera komin 6 vikur - en er auðvitað ekki viss.
Hvað byrja ég á að gera þetta er mitt fyrsta jákvæða próf - við erum rosa til í að fara í snemmsónar, hvar er best að fara í það?Góðan dag og til hamingju með þungunina,
Snemmsónar er framkvæmdur á ýmsum stöðum hérlendis. Tilgangur þeirra er að staðfesta þungun í legi og meta meðgöngulengd. Kvensjúkdómalæknar og ljósmæður sem hafa lært sónarskoðanir taka að sér að framkvæma þessar skoðanir. Hvet þig til að kynna þér hvað er í boði.
Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.

Alþjóðasiðareglur ljósmæðra
Siðareglur ljósmæðra byggja á gagnkvæmu trausti og virðingu og á þeirri meginhugsun að sérhvern einstakling beri að virða sem manneskju.
Fæðingartölur á Íslandi
- 0
Að meðaltali fæðir kona/leghafi 1,6 barn á ævi sinni. Sú tíðni hefur jafnt og þétt farið lækkandi síðastliðna áratugi.
- 0
Árið 2023 fæddust samtals 2257 drengir, sem var tæplega helmingur allra fæddra barna.
- 0
Á sama tíma fæddust 2058 stúlkur, sem gerði heildarfjölda nýfæddra barna að 4315.
