Hæ ég var að velta því fyrir mér hvort maður megi fá sér trufflusósu á meðgöngu?
Góðan dag,
Trufflusósa er í góðu lagi á meðgöngu. Auðvitað ef egg eru í sósunni skal huga að því að eggin séu gerilsneydd ef sósan er köld. Almennt eru kaldar sósur gerilsneyddar sem seldar eru í búðum hérlendis.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
Hæhæ, ég er að glíma við svakalegan nefþurrk. Fæ miklar stíflur og fæ nánast engann svefn. Málið er að èg get ekki snýtt mér afþví það er ekkert hor, heldur er ég bara með bólgið inní nefinu sem þrengir að og ég get ekki andað með nefinu. Er bannað að nota nefsprey? Þa nezeril eða otrivin. Hef profað saltvatn og það virkar ekki.
Takk fyrirGóðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Ekki er mælt með notkun Otrivin á meðgöngu. Varðandi Nezeril má aðeins nota það á meðgöngu samkvæmt ráðleggingum læknis ef önnur úrræði eru fullreynd. Hvet ég þig því að ræða við heimilislækni á heilsugæslu ef svo er.
Önnur úrræði geta verið:
- Hækka undir höfuðlagi á nætur
- Nota saltvatn eða sprey til að skoðla nefgöng
- Drekka vel af vatni yfir daginn (6-8 glös að minnsta kosti)
- Lofta um svefnherbergi (opna glugga)
- Anda að sér heitri vatnsgufu
- Hækka undir höfðalagi á nóttu
- Leggja heitt, rakt þvottastykki yfir andlit
Gangi þér vel.
Bkv. Ilmur Björg, ljósmóðir
Er örugt að fara i aflitun eftir 12 viku á meðgöngu?
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Hér má nálgast svör ljósmóður um litun hárs á meðgöngu.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.

Alþjóðasiðareglur ljósmæðra
Siðareglur ljósmæðra byggja á gagnkvæmu trausti og virðingu og á þeirri meginhugsun að sérhvern einstakling beri að virða sem manneskju.
Fæðingartölur á Íslandi
- 0
Að meðaltali fæðir kona/leghafi 1,6 barn á ævi sinni. Sú tíðni hefur jafnt og þétt farið lækkandi síðastliðna áratugi.
- 0
Árið 2023 fæddust samtals 2257 drengir, sem var tæplega helmingur allra fæddra barna.
- 0
Á sama tíma fæddust 2058 stúlkur, sem gerði heildarfjölda nýfæddra barna að 4315.











