Ég á svakalega erfitt með að drekka vatn á meðgöngu, get það bara ekki án þess að kasta upp, og hef verið að setja aloe vera djús (Herbalife) út í vatn til að hafa smá bragð svo ég geti drukkið vatnið. Ég var eitthvað að googla áðan og fann rosalega misvísandi svör með hvort það sé öruggt og þá sérstaklega á fyrsta þriðjungi svo mig langaði að senda fyrirspurn hingað til að fá skýrari svör.
Er annars einhverjar aðrar góðar leiðir til þess að koma í sig vökva þegar vatn er alveg síðasta sort? Tek það fram að almennt er ég mjög dugleg að drekka vatn en það breytist eitthvað á meðgöngu og ég bara get það ekki.Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Stundum hjálpar að setja klaka í vatnið eða einmitt bragð/þykkni í vatnið. Það eru efni í aloe vera plöntum sem eru ekki ráðlögð inntöku á meðgöngu og því myndi ég ráðleggja þér að velja annað. Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, ljósmóðir.
Ég var að komast að því að ég er ólétt, líklega bara komin 5 vikur á leið en mig langar svona rosalega mikið í lakkrís orðið! Er óhætt að borða það þunguð?
Góðan dag og til hamingju með þungunina,
Lakkrís er eitthvað sem allir ættu að fara varlega í að borða mikið af, þá sérstaklega á meðgöngu og/eða ef einstaklingur er með háan blóðþrýsting. Ef borðaður er lakkrís á meðgöngu er mælt með að hafa það í hófi.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.
Má taka adhd lyfið elevans á meðgöngu ?
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Ávalt er mælt með að hafa samráð við lækni (heimilislækni eða geðlækni) um áframhaldandi meðferð eða breytingu á geðlyfjum vegna þungunar. Ráðlagt er að hafa samband við ljósmóður í meðgönguvernd, heimilislækni eða geðlækni til að fá svör við þessum spurningum hvort sem þungun hefur orðið eða þú sjáir fyrir þér að þungun í náinni framtíð. Í hvert skipti er metið bæði ávinningur og áhættur lyfjameðferðar.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.

Alþjóðasiðareglur ljósmæðra
Siðareglur ljósmæðra byggja á gagnkvæmu trausti og virðingu og á þeirri meginhugsun að sérhvern einstakling beri að virða sem manneskju.
Fæðingartölur á Íslandi
- 0
Að meðaltali fæðir kona/leghafi 1,6 barn á ævi sinni. Sú tíðni hefur jafnt og þétt farið lækkandi síðastliðna áratugi.
- 0
Árið 2023 fæddust samtals 2257 drengir, sem var tæplega helmingur allra fæddra barna.
- 0
Á sama tíma fæddust 2058 stúlkur, sem gerði heildarfjölda nýfæddra barna að 4315.













