Má maður fá gervineglur þegar maður er óléttur? Svona gel/akrýl neglur sem þarf að nota UV lampa til að festa?
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Það ætti almennt að vera í lagi að fá sér gervineglur á meðgöngu. Þó er alltaf í góðu lagi að vera skeptískur og spyrjast fyrir um hvaða efni eru notuð.
Sniðugt er að þvo vel hendur eftir að neglur eru settar á og einnig að lofta vel um rýmið á meðan á gervineglurnar eru settar á þar sem oft eru sterk efni notuð.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg, ljósmóðir.
Má fara í sund strax eftir að lykkjan hefur verið sett upp?
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Ef þér líður vel eftir uppsetningu ætti það að vera í góðu lagi. Endilega berðu það undir þann sem sem setur upp lykkjuna hjá þér.
Bestur kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
Ég fæ svakalega krampa í kálfa og iljar á nóttunni, þannig að ég haltra daginn/dagana á efrir. Er eitthvað hægt að gera til að minnka nætur krampa? Hiti/kuldi, nudd og teygjur hafa ekki dugað.
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Sinadrættir/krampar á meðgögnu er algengur fylgikvilli meðgöngunnar. Í einhverjum tilvikum getur aukin inntaka magnesíum hjálpað til. Einnig getur hjálpað að fara í heitt bað, léttan göngutúr og teygja vel eftir á. Einnig hvet ég þig að drekka vel af vatni þar sem þurrkur getur aukið krampa.Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.

Alþjóðasiðareglur ljósmæðra
Siðareglur ljósmæðra byggja á gagnkvæmu trausti og virðingu og á þeirri meginhugsun að sérhvern einstakling beri að virða sem manneskju.
Fæðingartölur á Íslandi
- 0
Að meðaltali fæðir kona/leghafi 1,6 barn á ævi sinni. Sú tíðni hefur jafnt og þétt farið lækkandi síðastliðna áratugi.
- 0
Árið 2023 fæddust samtals 2257 drengir, sem var tæplega helmingur allra fæddra barna.
- 0
Á sama tíma fæddust 2058 stúlkur, sem gerði heildarfjölda nýfæddra barna að 4315.













