Verkir í fæðingu

Engin fæðing er eins, verkjaupplifun hverrar konu er ólík. En að fæða barn er alltaf vinna, eins og enska orðið „labour“ gefur til kynna.

Verkjaupplifun í fæðingu er samspil innri og ytri þátta. Innri þættir eins og hræðsla, hvaðan sem hún er uppsprottin, getur aukið mjög á verkjaupplifun og getur hún einnig hamlað framgangi fæðingarinnar og þess vegna er svo mikilvægt að konur mæti ekki hræddar til leiks í fæðingu. Einn af þeim þáttum sem getur aukið á hræðslu fyrir fæðingu er skortur á þekkingu. Fræðsla og undirbúningur fyrir fæðingu eru mikilvæg atriði. Fæðingarhræðsla eða ótti er ekki óalgengur og hugsanlega er hann til komin vegna frásagna um hræðilegar fæðingar og Hollywood-kvikmynda þar sem fæðingar eru oftar en ekki sjúkdómsvæddar og gerðar ógnvænlegar. Þetta getur orðið til þess að konur verði dauðhræddar við fæðingu jafnvel löngu áður en þær verða barnshafandi í fyrsta sinn. Einnig virðist alltaf heyrast hærra í þeim sem eiga neikvæða reynslu af fæðingum en þeim sem eiga jákvæða. Fyrri fæðingarreynsla sem var erfið getur setið í konum í langan tíma og það er mikilvægt að vinna úr þeirri upplifun áður en farið er af stað í næstu fæðingu. Á Landspítalanum er boðið upp á þjónustu fyrir konur sem hafa átt erfiða fæðingarreynslu, sem kallast Ljáðu mér eyra, þar sem ljósmóðir fer yfir fæðinguna með konunni og stuðningsaðila og reynt er að vinna úr því sem erfitt var. Aðrir innri þættir eins og þreyta og streita geta einnig magnað upp verkjaupplifun. Rannsóknir hafa sýnt fram á að góður stuðningur í fæðingu hafi jákvæð áhrif á útkomu og upplifun kvenna í fæðingu. Ytri þættir eins og upphaf og gangur fæðingar, staða barns í grindinni og hvort vatnið sé farið getur einnig skipt máli. Engin kona er eins, sögur þeirra eru ólíkar og fæðingar þeirra líka. Til að efla sjálfstraustið fyrir fæðingu eru hér dæmi um góðar bækur til fræðslu og valdeflingar.

Ina Mays Guide to Childbirth

Gentle Birth, Gentle Mothering : A Doctor´s Guide to Natural Childbirth and Gentle Early Parenting Choices

Mindful Birthing: Training the Mind, Body, and Heart for Childbirth and Beyond

Valmynd