Handmjólkun á meðgöngu
Að safna broddi eftir 36 vikna meðgöngu getur haft jákvæð áhrif á brjóstagjöf. Söfnun brodds á meðgöngu getur meðal annars aðstoðað nýbura sem eru í áhættu á að eiga í erfiðleikum við fæðugjöf eða blóðsykurstjórnun fyrstu dagana eftir fæðingu.
Handmjólkun og geymsla á broddi á meðgöngu getur aukið líkur á því að framleiðsla móðurmjólkur fari fyrr af stað eftir fæðingu og að barn þurfi síður þurrmjólkurábót. Gott er að bera undir ljósmóður í meðgönguvernd hvort söfnun brodds sé ráðlögð fyrir þig. Í einstaka tilfellum ráðleggur ljósmóðir móður að handmjólka sig á meðgöngu.
Broddur er fyrsta mjólkin sem brjóstin framleiða og byrjar að myndast um 16 vikna meðgöngu. Mjólkin er stútfull af mótefnum og styður við góða meltingu nýburans og spornar gegn ofnæmi og veikindum barns.
Kostir handmjólkunar á meðgöngu geta verið að kona lærir að þekkja brjóstin sín og þannig aukið öryggi hennar við handmjólkun eftir fæðingu.
Ef engir áhættuþættir eru til staðar ætti ekki að vera þörf á handmjólkun á meðgöngu.
Handmjólkun getur örvað samdrætti í leginu og aukið líkur á fyrirburafæðingu ef byrjað er fyrir 36 vikna meðgöngu. Vegna þessa er yfirleitt ekki mælt með handmjólkun fyrir þann tíma.
Handmjólkun eftir 36 vikna meðgöngu getur skilað árangri meðal annars ef:
- Móðir er með sykursýki.
- Móðir á planaðan valkeisara (ráðlagt að bera undir ljósmóður).
- Móðir hefur farið í aðgerð á brjóstum eða grunur um óþroskaðan brjóstvef (hypoplasia).
- Erfið fyrri reynsla af brjóstagjöf (t.d. mjólk kom seint, lítil framleiðsla, barn léttist óeðlilega mikið eftir fæðingu)
Ekki ætti að hafa áhyggjur ef lítil mjólk kemur við handmjólkun á meðgöngu. Eftir fæðingu barns og fylgju fer af stað náttúrulegt ferli líkamans til að búa til mjólk.
Yfirleitt er ekki mælt með að nota brjóstapumpu á meðgöngu við að ná broddinum því hann er þykkur og handmjólkun nær honum betur fram.
Það að safna broddi á meðgöngu er ekki talið líklegt að hafa neikvæð áhrif á brjóstagjöf og en þó eru nokkrar frábendingar til staðar, þar má nefna:
- Fyrirsæt fylgja
- Hótandi fyrirburafræðing / saga um fyrirburafæðingu
- Blæðing á meðgöngu
Hvernig fer handmjólkun fram:
Mikilvægt er að huga að hreinlæti. Hafa hreinar hendur og nota hrein ílát. Þegar handmjólka á brjóstin er gott að byrja á því að setja heitan bakstur á brjóstið í 2-3 mínútur. Nudda síðan brjóstið og geirvörtubaug í nokkrar mínútur til að örva tæmingarviðbragð. Nota skal hringlaga hreyfingar og léttan þrýsting.
Þegar brjóstið er handmjólkað er þumalfingur lagður 2-3 cm fyrir ofan geirvörtu og fjórum fingrum 2-3 cm fyrir neðan (C-grip). Þrýst er inn í brjóstið að brjóstkassa og kreist mjúklega saman, þumli og fingrum er síðan rúllað fram að geirvörtu. Þrýstingurinn er losaður og ferlið endurtekið. Hendurnar eru síðan færðar hringinn í kringum brjóstið og ferlið endurtekið.
Mjólk getur byrjað að flæða. Þar sem broddurinn er þykkur þá kemur hann út úr brjóstinu í dropatali. Ef lítill broddur kemur þýðir það ekki að vandamál verði til staðar í brjóstagjöf.
Í fyrstu gætir þú miðað við að handmjólka 1 sinni á dag í nokkrar mínútur. Með tímanum er hægt að fjölga skiptum í 2-5 skipti á dag en hver finnur sitt jafnvægi.
Ráðlagt er að hætta að handmjólka ef samdrættir koma fram.
Hér má nálgast myndband af handmjólkun.
Geymsla mjólkur
Setjið broddinn í steríla/hreina sprautu, ílát eða poka merkta með nafni og dagsetningu. Hægt er að safna broddi 2-3 sinnum sama daginn og geyma í sömu sprautunni. Geyma skal sprauturnar í ísskáp á milli notkunar.
Broddinn má geyma í allt að 24 klst í kæli áður en hann er settur í frysti. Brjóstamjólk (broddur) geymist í tvær vikur í frystihólfi inni í ísskáp, þrjá mánuði í frysti með sérhurð á ísskáp og 6-12 mánuði í djúpfrysti.
Ekki er ráðlagt að frysta mjólk aftur eftir að búið er að afþýða hana.
Að taka með sér brodd á fæðingarstað
Ef stefnt er að því að taka broddinn með á fæðingarstað er sniðugt að hafa broddinn í kælitösku, jafnvel milli ískubba.
Þar sem mismunandi er hve langt er í að barn mætir í heiminn eftir komu á fæðingarstað gæti verið sniðugt að fá fjölskyldumeðlim til að koma með broddinn á fæðingarstað eftir að barn er fætt.
Ljósmóðir sem sinnir ykkur á fæðingarstað getur aðstoðað við geymslu og meðhöndlun broddsins.
Heimildir
https://www.nth.nhs.uk/resources/colostrum-harvesting/
https://www.breastfeeding.asn.au/resources/antenatal-expressing
https://www.leedsth.nhs.uk/patients/resources/antenatal-hand-expressing/
Gæðahandbók Landspítala um Handmjólkun á broddi á meðgöngu.
Brjóstagjafabókin. Fyrir foreldra og fagfólk.