Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
Árið 2017 voru fæðingar 4.019 á Íslandi þar sem alls fæddust 4.075 börn, en nokkrar fjölburafæðingar fara fram á ári hverju. Flestar fæðingar fara fram á sjúkrahúsum í dag en áhugi fyrir heimafæðingum hefur aukist mikið á undanförnum árum og heimafæðingum hefur fjölgað til muna.
Á nokkrum minni sjúkrahúsum um landið og í heimafæðingum er skilyrði að konan sé hraust í eðlilegri meðgöngu, heilsufar móður og barns á meðgöngu hefur því áhrif á þá valmöguleika sem í boði eru. Haustið 2017 opnaði Fæðingarstofa Bjarkarinnar í Reykjavík sem eykur val hraustra kvenna í eðlilegri meðgöngu enn frekar.
Tilvalið er að ræða val á fæðingarstað við ljómóður í meðgönguvernd.
*Skýringar og nánari upplýsingar um þjónustustig og starfsaðstæður á fæðingarstöðum á Íslandi er að finna í bæklingnum Val á fæðingarstað (pdf).
Hrafnhildur Lóa Guðmundsdóttir, sími 8660251, hrabbyloa@gmail.com
Sjá nánari upplýsingar um fæðingarstaði í bæklingnum Val á fæðingarstað og um fjölda fæðinga á hverjum stað í Skýrslu Fæðingarskráningarinnar fyrir árið 2017.